Mynd vikunnar

 
Fjör á netaveiðum.



Karlinn brosir í brúnni enda úrgreiðsluborðið fullt af fiski eins og hann
vill hafa það. Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á
netavertíð.
Karlarnir eru, frá vinstri: Kristján Karlsson á rúllunni,  Stefán Jósefsson
skipstjóri og útgerðamaður í brúnni,
Ragnar Ingvarsson og Hjörtur Guðmundsson við úrgreiðsluborðið.
Maðurinn bak við Ragnar er Kristinn Thor Sigurðsson.
Myndina tók Árni Geir Ingvarsson sem var einn af hásetunum á
Ólafi á þessum tíma.

Senda upplýsingar um myndina