Mynd vikunnar

 
 Höfðaskóli 60 ára 1999



Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns
uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár.
Eitt af því sem gestir gátu skoðað var sýnishorn af hvers
konar kennslugögn voru notuð í gamla daga.
Þessi mynd sýnir hluta af slíkum gömlum gögnum. 
Í dag mundi þessi mynd líta mjög öðruvísi út með
vasareiknum, nettengdum tölvum, sjónvörpum og
spjaldtölvum sem nú einkenna kennsluumhverfið í
skólanum ásamt mun þægilegri húsgögnum.