Mynd vikunnar

 
Heyflutningar með H 34



H 34 með stóran heyfarm. H 34 var í eigu Gunnars Helgasonar
(d. 19.10.2007) vörubílstjóra sem átti marga bíla með þessu númeri.
Áður en núverandi tækni við heyverkun var þekkt þurfti að þurrka heyið
á túni og flytja það síðan heim í hlöðu áður en haustaði of mikið að með
öllum sínum rigningum og lægðagangi.
Þá var heyið gjarnan flutt á vörubíl að hlöðunni og því svo mokað inn með
hvíslum. Þá var nóg að gera fyrir börn og unglinga að troða niður heyið,
þjappa því saman í hlöðunni, til að koma sem mestu fyrir þar.
Það af heyinu sem ekki komst inn í hlöðu var síðan sett í fúlgu við
hlöðuna og það þótti mikil kúnst að hlaða fúlguna rétt svo hún verði sig
sem best í rigningu. Í þeim tilgangi var oft breiddur strigi eða segl ofan á
hana þannig að vatnið rann út af fúlgunni en ekki inn í heyið.