Mynd vikunnar

 



Í símaafgreiðslunni

Þórunn Bernódusdóttir á vinnustað sínum sem símaafgreiðslustúlka
á Gamla pósthúsinu. Fyrir tíma sjálfvirkninnar þurfti símastúlkan að
gefa samband milli númera í kerfinu og "gefa línu" eins og kallað var
gegnum tengiborðið sem sést til hægri.
Á þessari mynd, sem líklega var tekin einhverntíma kringum 1975,
hefur Pálína Freyja Harðardóttir komið í heimsókn af efri hæðinni þar
sem hún átti heima á þessum tíma.
Senda upplýsingar um myndina