Þennan bíl gerði Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972),  sem er á myndinni, út í vöru - og  fólksflutningum milli  Skagastrandar og Reykjavíkur í mörg ár.   Í stóru húsi bílsins var hægt að taka 4-5 farþega og oftar en ekki var  uppselt í þessi sæti. Ferðin til Reykjavíkur tók 8 - 10 tíma með hádegisstoppi  í Fornahvammi þar sem starfrækt var hótel og matsala. Númi átti heima á  Hólabraut 1 og byggði húsið sem þar stendur.  Vöruflutningarekstur hans skýrir hvers vegna bílskúrinn við húsið er svo stór  og með mikla lofthæð því hann gat bakkað bílnum á myndinni inn í skúrinn  meðan hann var að afferma hann.  Einnig voru þar geymdir pakkar og annað sem fólk var að senda með honum  í næstu ferð suður.  Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason, líklega árið 1969.  |