Mynd vikunnar



Óhapp í dráttarbrautinni
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á
Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn.
Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla
úr lestinni.
Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili.
Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993.
Myndina tók Ingibergur Guðmundsson.