Námskeið í sáningu og ræktun matjurta

Námskeiðið verður haldið í Höfðaskóla laugardaginn 17. apríl kl. 13 til 18. 

Á því verður farið yfir fjölmörg atriði og má nefna þessi:
 Hefðbundnar og óhefðbundnar ræktunaraðferðir
 Leiðsögn um hvernig jarðvegur henti og áburðargjöf. 
 Útskýrðir helstu þættir mismunandi gerðir ræktunarbeða
 Hollusta og lækningamáttur matjurta. 
 Varnir gegn sjúkdómum og skordýrum
 Aðferðir við geymslu og matreiðslu. 
 Ræktunaraðferðir kryddjurta og berjarunna 

Kennari er garðyrkjufræðingurinn Auður I. Ottesen. Hún býr yfir margra ára reynslu í ræktun matjurta, hefur haldið fjölda námskeiða og tekið saman fræðsluefni um matjurtarækt. 

Gjald fyrir námskeiðið er 5.000 kr. og þarf skráning að hafa farið fram fyrir fimmtudaginn 15. apríl nk. 

Nánari upplýsingar og skráning er á skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455-2700
Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið bjóði upp á matjurtagarða í vor og sumar sem íbúar geta fengið til afnota. 

Sveitarstjóri