Námskeið um verðlagningu á vöru

Verðlagning vöru og þjónustu er oft ýmsum vandkvæðum háð og ósjaldan lenda menn í vandræðum með hana. Þann 24. nóvember verður Útflutningsráð með námskeið í áætlanagerð og verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í samvinnu við KPMG og SSNV-atvinnuþróun.
 
Námskeiðið verður haldið að Mælifelli á Sauðárkróki, mánudaginn 24. nóvember kl. 13-17. Á námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. 
Þátttakendur fá einnig áætlunarlíkan í Excel til afnota. 

Námskeiðið er ætlað fyrirtækjum í útflutningi á vöru og þjónustu þ.á m. ferðaþjónustufyrirtækjum og öllum er velkomið að sækja það. Ekki er krafist greiðslu. 

Nánari upplýsingar veitir Katrín María Andrésdóttir hjá SSNV- Atvinnuþróun, sími 455 6119, kata@ssnv.is. Þar er einnig tekið við skráningu á námskeiðið. 

Einnig veitir Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði nánari upplýsingar, sími 511 4000, inga@utflutningsra