Námsstyrkir

Sveitarfélagið Skagastönd veitir styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2012-2013 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 25. febrúar 2013.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni
  http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.

Sveitarstjóri