Námsstyrkir til nemenda

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd skv. ákvörðun sveitarstjórnar.

Námsstyrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi nema 100 þús. kr. skólaárið 2025-2026 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

Umsóknum um styrki skal skilað á fulltrui@skagastrond.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026

Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins eða í tölvupósti fulltrui@skagastrond.is

Reglur um styrkina má finna hér.

Umsókn um styrk má finna hér.