Námsstyrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi

  Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2018 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2017-2018 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 20. apríl 2018.

 

Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.


Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni.

 

 

Sveitarstjóri