Nes listamiðstöð er á Eyrarrósarlistanum 2015


Eyrarrósin er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar, á sviði menningar og lista. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi árið 2005.  Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofnunar, Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar; tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina.


Handhafar Eyrarrósarinnar frá upphafi:


  • Þjóðlagahátíðin á Siglufirði (2005)

  • LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi (2006)

  • Stranda­galdur á Hólmavík (2007)

  • Rokkhátíð alþýðunnar; Aldrei fór ég suður (2008)

  • Landnámssetur Íslands (2009)

  • Bræðslan á Borgarfirði eystra (2010)

  • Sumartónleikar í Skálholtskirkju (2011)

  • Safnasafnið á Svalbarðsströnd (2012)

  • Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi (2013)

  • Áhöfnin á Húna (2014)

Listi yfir þau tíu verkefni sem eiga möguleika á því að hljóta Eyrarrósina í ár hefur verið birtur.

Í ár barst mikill fjöldi umsókna um Eyrarrósina hvaðanæva af landinu. Eyrarrósarlistinn 2015 birtir nöfn þeirra tíu verkefna sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Þann 18. mars næstkomandi verður tilkynnt hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Eyrarrósarlistinn 2015
* Braggast á Sólstöðum                                   
* Ferskir vindar                                                 
* Frystiklefinn                                                   
* Listasafn Árnesinga                                       
* Listasafnið á Akureyri   
* Nes Listamiðstöð               
* Orgelsmiðjan á Stokkseyri    
* Verksmiðjan á Hjalteyri
* Þjóðlagasetrið á Siglufirði

Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn laugardaginn 4.apríl næstkomandi á Ísafirði. Að venju mun Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhenda verðlaunin.