Neyðarkall björgunarsveitanna

Fimmtudaginn 5. nóvember eftir klukkan 18 munu félagar í Björgunarsveitinni Strönd ganga í hús á Skagaströnd og bjóða til sölu lítinn neyðarkall. Hér er um að ræða fjársöfnun björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem fram fer  um allt land. 

Neyðarkallinnl kostar aðeins 1.500 kr. Hagnaður af sölunni mun renna til sveitanna og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður notaður til að efla og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins.

Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tæki og þekkingu.

Þrátt fyrir að meðlimir björgunarsveitanna séu allir sem einn sjálfboðaliðar er rekstur sveitanna dýr. Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi, húsnæði þarf undir búnað og olíu á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti, t.d. sölu flugelda, dósasöfnun, gæsluverkefnum, jólatrjáasölu og ýmsu öðru.  Og nú bætist neyðarkallinn við. 

Vonast er til að Skagstrendingar taki björgunarsveitarmönnunum opnum örmum og styðji þannig við bakið á fornfúsu starfi þeirra og þúsunda annarra björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda. .