Nýir listamenn komnir á Skagaströnd

Nýjir gestir eru komnir til Skagastrandar á vegum Nes-listamiðstöðvar. 

Listamennirnir koma hinga víða að og verða allan júlímánuð hér og sinna listiðkun sinni.

·         Marian Bijlenga er textíllistakona og kemur ásamt maka sínum frá Hollandi.

 ·        Wendy Crockett er ljósmyndari frá Kaliforníu.

·         Jade Boyd er vídeólistamaður og kemur alla leið frá Ástralíu.

·         Ger Glancy er írskur skúlptúrlistamaður

·         Jon Mertz er frá Sviss og er skúlptúrlistamaður og kona hans er Katya og er rússnesk.

·         Halldór Á. Sveinsson er málari og myndlistakennari.

·         Guðrún Benónýsdóttir er er myndlistakona

Fólkið býr á Mánabraut 1 og 11 og Túnbraut 5 og hefur vinnuaðstöðu í gamla fiskvinnsluhúsinu við Fjörubraut.