Nýir Skagstrendingar komnir til listsköpunar

Nýr mánuður á Skagströnd færir til bæjarins nýja listamenn. Hjá Nesi listamiðstöð eru nú komnir ágætir listamenn til dvalar í júlí.

Þeir eru:
  • Maja Lucas, rithöfundur frá Danmörku
  • Per Johansen, frá Danmörku
  • Peter Möller, myndlistamaður frá Þýskalandi
  • Jared Betts, málari frá Kanada
  • Julia Sossinska, málari frá Þýskalandi
  • Johannes Mahle, frá Þýskalandi
  • Sharon Beth Dowell, málari frá Bandaríkjunum
  • Unnur Knudsen, textíllistaðamaður
  • Catelin Mathers-Suter, málari frá Bandaríkjunum
Tekið er fagnandi á móti þessum nýju Skagstrendingum og þær óskir fylgja að þeim muni gagnast dvölin vel, en njóti hennar framar öllu.