Nýr fiskibátur til Skagastrandar

Vík ehf útgerð hefur endurnýjað fiskiskipið Öldu HU 112 með kaupum á Kristni II SH 712 sem er 13 m langur og 14,92 tonna yfirbyggður plastbátur. Kristinn II er smíðaður hjá Trefjum ehf 2006 og í alla staði mjög vel útbúinn.

Báturinn kom til heimahafnar á Skagaströnd í gær en hann er reyndar ekki ókunnugur í höfninni því hann hefur verið gerður út frá Skagaströnd hluta úr árinu undanfarin ár. Báturinn mun hljóta nafnið Alda og verður með skráningarnúmerið HU 112. Skipstjóri á bátnum verður Jóhann Sigurjónsson.