Þann 1. ágúst s.l. tók Ólafur Þór Ólafsson til starfa sem sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar. Þessa fyrstu viku í starfi hefur hann verið að setja sig inn í hin ýmsu málefni er varða sveitarfélagið og haft í mörg horn að líta.
Ólafur Þór hefur áður verið sveitarstjóri hjá Tálknafjarðarhreppi og Reykhólahreppi en kemur upphaflega frá Suðurnesjum. Hann ólst upp í Sandgerði þar sem hann var lengi starfandi í sveitarstjórnarmálum, m.a. forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar og formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar. Hann er búsettur í Garðabæ ásamt sambýliskonu sinni Sigríði Katrínu Kristbjörnsdóttur, sem starfar sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Ólafur mun flytja til Skagastrandar á næstu vikum og segist hlakka til að kynnast betur fólkinu og samfélaginu í bænum.