Heldur hefur fjölgað nemendum í fjórða bekk, en það eru óvenjulegir bekkjarfélagar sem hafa bæst í hópinn. Það eru skordýr sem heita Förustafir (Phasmatodea) sem eru viðbótin í bekknum.
Förustafir eru dýr sem líkjast helst litlum trjágreinum í útliti og vekja mikinn áhuga hjá krökkunum. Nemendur sýna þessum nýju vinum mikinn áhuga og fylgjast spennt með þeim á hverjum degi. Það fylgir því mikil ábyrgð að passa upp á svona smáa félaga og vonast fjórðubekkingar til þess að halda lífi í förustöfunum í allan vetur. Þetta skemmtilega verkefni kennir krökkunum ábyrgð og eykur samvinnu bekkjarins.