Októbernámskeiðin í Textílsetrinu á Blönduósi

Textílsetur Íslands í Kvennaskólanum Blönduósi býður upp á ýmsa viðburði í október.

Prjónakaffi verður haldið þriðjudaginn 6.okt. kl. 20.00. Storkurinn, hannyrðaverslun, kynnir þá vörur og námskeið. Verslunin hefur sérhæft sig í m.a. bresku gæðagarni, efnum og bókum og hönnun frá Kaffe Fasset, sjá nánar á vefsíðunni www.storkurinn.is.

Námskeið verða á boðstólnum fyrir áhugasama. 

Silkimálun verður þriðjudaginn 6. og fimmtudaginn 8. október kl. 19.30 til 22.00.  Þar kennir Inese Elferte málun á silki og bómullarefni. Kennt er að nota  einfaldar aðferðir til að mála á silki og önnur efni;  slæður, fataefni, myndir, málað á boli, koddaver o.s.frv. Námskeiðið er tilvalið fyrir kennara því tæknina má auðveldlega nýta í kennslu í grunnskóla.

Haustnámskeið, námskeiðaröð verður laugardaginn 27. og þriðjudaginn 27. október. Ýmis námskeið verða á boðstólnum og geta nemendur raðað saman stundatöflu eftir því hvar áhuginn liggur.

  • Prjónanámskeið;  prjóntækni, EZ listasmiðja, peysa prjónuð ofan frá, mósaíkprjón, tveir hlutir prjónaðir á einn prjón.
  • Hekl; „venjulegt hekl”, rússneskt hekl, frjálst hekl.
  • Gimb og spuni á halasnældu

Athugið að fullt er á sum námskeiðin en enn er möguleiki að komast inn á stök námskeið. 

Nánari upplýsingar: www.textilsetur.is, textilsetur@simnet.is og í síma 894-9030.