Olís breytir þjónustustöðvum í ÓB á Skagaströnd, Ólafsfirði og í Fellabæ

Olís breytir þjónustustöðvum í ÓB á Skagaströnd, Ólafsfirði og í Fellabæ

Sem hluti af umbreytingarvegferð Olís verður þjónustustöðvum Olís á Skagaströnd, Ólafsfirði og í Fellabæ breytt í ÓB sjálfsafgreiðslustöðvar. Á næstu árum stefnir Olís að því að útvíkka þjónustu- og vöruframboð þjónustustöðva til að mæta breyttum þörfum viðskiptavina. Liður í þeirri vegferð felur í sér fækkun og stækkun þjónustustöðva og af þeim sökum verður tilteknum staðsetningum breytt í sjálfsafgreiðslustöðvar. Þessi breyting hefur þegar átt sér stað í Hamraborg í Kópavogi og á Klöpp í Reykjavík. Þá liggur jafnframt fyrir að Álfheimar og Álfabakki í Reykjavík víkja fyrir Borgarlínu innan fárra ára.

Þrátt fyrir blendnar tilfinningar í tengslum við fækkun þjónustustöðva þá er nauðsynlegt að skjóta traustari stoðum undir rekstur þeirra til að umrædd starfsemi standist tímans tönn. Útvíkkun eftirstandandi þjónustustöðva í þægindamiðstöðvar er sú lausn sem félagið hefur trú á í þessu samhengi.

Olís mun eftir fremsta megni lágmarka áhrif umræddra breytinga á þau nærsamfélög þar sem þjónustustöðvum verður breytt í sjálfsafgreiðslustöðvar og þá verður jafnframt leitast við að bjóða fastráðnu starfsfólki störf á öðrum starfsstöðvum Olís eða hjá tengdum aðilum. Með breytingu í sjálfsafgreiðslustöðvar gefst tækifæri til að bjóða viðskiptavinum hagstæðari kjör á eldsneyti og stefnt er að því að húsnæði félagsins á hverjum stað nýtist í rekstur af öðru tagi. Gert er ráð fyrir að breytingarnar eigi sér stað á öllum þremur staðsetningum um miðjan september.

 

Frekari upplýsingar vegna Skagastrandar

Unnið verður að því að finna rekstraraðila sem getur nýtt húsnæði Olís á Skagaströnd. Viðskiptavinum á svæðinu verður tryggt aðgengi að þeim vöruflokkum sem ekki er unnt að nálgast hjá öðrum rekstraraðilum á svæðinu, s.s. bílavörum og gasi. Þetta verður gert í gegnum umboðsmann Olís á Skagaströnd. Þá verður þjónustu fyrirtækjasviðs jafnframt viðhaldið á svæðinu. Við umbreytingu í ÓB sjálfsafgreiðslustöð verður unnt að bjóða hagstæðari kjör á eldsneyti á umræddri staðsetningu.

 

Frekari upplýsingar vegna Fellabæjar

Gert er ráð fyrir að nýr rekstraraðili hefji starfsemi í húsnæði Olís í Fellabæ í kjölfar breytingar í ÓB sjálfsafgreiðslustöð. Stefnt er að því að viðkomandi aðili verði með veitingarekstur og bjóði til sölu ýmsa vöruflokka frá Olís, s.s. bílavörur og gas. Við umbreytingu í ÓB sjálfsafgreiðslustöð verður unnt að bjóða hagstæðari kjör á eldsneyti á umræddri staðsetningu.

 

Frekari upplýsingar vegna Ólafsfjarðar

Unnið verður að því að finna rekstraraðila sem getur nýtt húsnæði Olís á Ólafsfirði. Þá er jafnframt gert ráð fyrir að efla vöru- og þjónustuframboð Olís innan Fjallabyggðar í gegnum þjónustustöð félagsins á Siglufirði. Þær breytingar munu eiga sér stað á næstu misserum. Við umbreytingu í ÓB sjálfsafgreiðslustöð verður unnt að bjóða hagstæðari kjör á eldsneyti á umræddri staðsetningu.