Opið hús hjá Nes listamiðstöð

Listamenn hjá Nes listamiðstöð opna vinnustofur sínar í lok hvers mánaðar þar sem þeir sýna þau verk sem þeir hafa verið að vinna að frá komu sinni.

Í kvöld þriðjudaginn 24. nóvember viljum við bjóða öllum sem áhuga hafa að koma í heimsókn, skoða listaverk í vinnslu og spjalla við listamennina um verkin og dvölina á Skagatrönd. 

Þessa stundina dvelja sjö listamenn frá þremur heimsálfum í Listamiðstöðinni á Skagaströnd.