Opið hús hjá Nesi listamiðstöð

Fimmtudaginn 23.september verður opið hús hjá Nesi listamiðstöð frá klukkan 18 til 20. Listamenn septembermánaðar bjóða Skagstrendingum og öðrum þeim sem áhuga hafa í heimsókn í vinnustofur sínar þar sem þeir munu sýna það sem þau hafa verið að vinna að undan farnar vikur. 

Átta listamenn hafa dvalið hjá okkur í september og þeir eru:
  • Andrea Weber – innsetningar og teiknari – Frakkland/Þýskaland
  • Anja Fußbach – blönduð tækni – Þýskaland
  • Brandon Vickerd – myndhöggvari – Kanada
  • Caroline Piccioni – myndhöggvari – England
  • Clint Wilson – videólistamaður – Kanada
  • Erica Mott – dansari – Bandaríkin
  • Louise Mary Thomas – listmálari – England
  • Marion Bösen – silkiprentari – Þýskaland
Á sama tíma munu þær Marion og Anja hafa skiptimarkaðinn sinn opin. Öllum er velkomið að koma með eitthvað sem handgert og skipta við þær og fá í staðinn listaverk að eigin vali. 

Það er t.d. hægt að koma með handverk eða bjóða þeim í bíltúr og sýna þeim eitthvað skemmtilegt. Einnig má segja þeim sögur eða jafnvel færa þeim eitthvað nýbakað eða eldað. 

Notum hugmyndaflugið og skiptum.