Á heimasíðu Höfðaskóla er sagt frá því að opið hús verið á morgun þann 22. október frá kl. 16:00 til 18:00 og eru öll boðin hjartanlega velkomin.
"Þetta er frábært tækifæri til að koma í heimsókn og kynnast starfi skólans betur.
Góðgerðarvikan okkar er hafin og við erum þegar farin að setja í kassana sem eiga að fara til Úkraínu. Þetta er mikilvægt verkefni þar sem við leggjum okkar af mörkum til að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda. Nemendur sýna mikinn áhuga á þessu góða málefni.
Á opna húsinu er boðið upp á vöfflukaffi sem kostar ekkert, en við tökum við frjálsum framlögum og rennur allur ágóði til góðgerðarvikunnar. Þetta er leið til að styðja við gott málefni á sama tíma og við njótum þess að setjast niður og spjalla.
Endilega kíkið í heimsókn í Höfðaskóla."
Við vonum svo sannarlega að sem flestir sjái sér fært að líta við í flotta skólanum okkar og kynnast því góða starfi sem þar fer fram.
Sveitarstjóri