Opið hús í kvöld hjá Nesi listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús í dag, miðvikudaginn 20.október,  frá klukkan 18 til 20. 

Listamenn septembermánaðar bjóða Skagstrendingum og öðrum þeim sem áhuga hafa í heimsókn í vinnustofur sínar þar sem þeir munu sýna það sem þau hafa verið að vinna að undan farnar vikur. 

Sjö listamenn hafa dvalið hjá Nesi í september og koma þeir frá Frakklandi, Írlandi, Englandi, Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu.

Listamenn mánaðarins eru:

Brandon Vickerd, myndhöggvari - Kanada
Orla Barry, listmálari - Írlandi
Michaela Gleave, innsetningar - Ástralía
Rebecca Partridge, listmálari - England
Heidi Schwegler, blönduð tækni - Bandaríkin
Laure Vigna, myndhöggvari - Frakklandi
Andrea Weber, innsetningar - Frakklandi