Opið hús í Nesi listamiðstöð á laugardaginn

Í júní dvelja fimmtán listamenn í Nesi listamiðstöð á Skagastönd. Ellefu þeirra verða með opið hús laugardaginn 27. júní frá kl. Þar verður hægt að skoða það sem listamennirnir hafa verið að vinna að og spjalla við þau og aðra um verkin. 

Listamennirnir sem sýna verk sín að þessu sinni eru: 

  • Julia Hectman
  • Matthew Rich
  • Nadege Druzkowski
  • Bernadette Reiter
  • Adriane
  • Wacholz
  • Kreh Mellick
  • Ashley Lamb
  • Hanneriina Moisseinen
  • Beth Yarnelle
  • Edwards
  • Jung-a Yang
  • Katalin Meixner

Julia Hectman ætlar jafnframt að bjóða upp á „örnámskeið“ í ljósmyndun og kynna ljósmyndatækni sína frá kl. 13. Gestir eru hvattir til að taka myndavélarnar sínar með á kynninguna til að bera upp spurningar um þær, læra og prufa. Námskeiðið er styrkt af Menningarráði Norðulands vestra og er því endurgjaldslaust.

Á sama tíma er sýning ,,Finding water" opin í nýjum sýningarsal Ness í Gamla kaupfélaginu. Að henni stendur listahópurinn Distill en hann skipa eftirtaldir listamenn: 

  • Ann Chucvara
  • Julie Poitras-Santos
  • Patricia Tinajero
  • Tsehai Johnson
  • Hrafnhildur Sigurðardóttir

Sýningin sem stendur til 5.júlí er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.