Opinn samráðsfundur vegna gerðar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir fólkvanginn Spákonufellshöfða

Þann 7. apríl nk. standa sveitarfélagið og Umhverfisstofnun að opnum samráðsfundi vegna gerðar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir fólkvanginn Spákonufellshöfða

7. apríl kl. 20:00-22:00- í Félagsheimilinu Fellsborg, Skagaströnd

Fundardagskrá:

 

20:00 – 20:30 Kynning á stöðunni

Hvað er stjórnunar- og verndaráætlun?

Hvar erum við stödd í ferlinu?

Hvernig nýtist stjórnunar- og verndaráætlun fyrir fólkvanginn?

 

20:30 – 21:00 Hópavinna og umræður - Viðfangsefni:

  • Hvaða gildi hefur Spákonufellshöfði fyrir þig?
  • Hvernig vilt þú sjá Spákonufellshöfða í framtíðinni?
  • Hvað þarf að gera til þess?
  • Hugmyndir að leiðarljósi fyrir stjórnunar- og verndaráætlun.

 

21:00 - 21:15 Kaffihlé

21:15 - 21:45 Áframhaldandi hópavinna

21:45 - 22:00 Samantekt og fundarslit