Opnun nýrrar líkamsræktarstöðvar

Að undanförnu hafa staðið yfir talsverðar breytingar á líkamsræktar aðstöðu í íþróttahúsinu og af því tilefni verður opið hús miðvikudaginn 17. janúar frá kl. 12:30-18:00.

Tækin eru fengin frá World Class og verða kynnt af starfsfólki og einkaþjálfara samkvæmt leiðbeiningu og kennslu frá  Ólafi Jóhannessyni stöðvarstjóra hjá World Class. Einni mun Þórey Fjóla Aradótti einkaþjálfari vera með til kynningar sína starfssemi.

Sveitarfélagið býður þessa aðstöðu gjaldfrjálst til 31. Janúar að þeim tíma loknum tekur við ný gjaldskrá.