Opnun nýrrar líkamsræktarstöðvar á Skagaströnd

 

Nýr líkamsræktarsalur hefur verið opnaður í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Salurinn er á miðhæð íþróttahússins þar sem hafa verið kennslustofur undanfarin ár. Við þá breytingu að öll almenn kennsla var flutt í grunnskólann eftir breytingar á því húsnæði á sl. ári opnaðist möguleiki til að nýta salinn í íþróttahúsinu fyrir líkamsrækt.

Tækin í salnum eru fengin frá World Class og eru samtals 18 og er ætlað að gefa möguleika á að þjálfa sem flesta vöðva líkamans en auk þess eru þrjú öflug hlaupabretti.   Við opnunina 17. janúar sl. voru tækin kynnt og Ólafur Jóhannesson stöðvarstjóra hjá World Class kenndi bæði starfsfólki og gestum hvernig best er að nota tækin. 

Með þessari breytingu verður mikil bylting á aðstöðu fyrir líkamsræktina sem hefur undanfarin 20 ár verið í kjallara íþróttahússins í frekar þrögnu rými og með misjöfnum tækjabúnaði. Þar verður reyndar áfram lyftingabúnaður, lóð og þess háttar þjálfunaraðstaða.

Auk líkamsræktaraðstöðunnar er á efstu hæð ágætur salur fyrir júdó, karate og jóga. Í tilefni þessara tímamóta og breytinga lagði Ungmennafélagið Fram til dýnur á allt gólf salarins.  

Við opnun líkamsræktarinnar kynnti Þórey Fjóla Aradóttir hvaða þjónustu hún gæti boðið sem einkaþjálfari.

​Íþróttahúsið var tekið í notkun fyrir réttum 20 árum því það var formlega opnað 15 mars 1998. Í því er 16x32 metra parketlagður salur þar sem hægt er að stunda ýmsar íþróttir.

Góð aðsókn var við opnun líkamsræktaraðstöðunnar og mikil ánægja með nýja aðstöðu og búnað og þau tækifæri sem opnast með þessari breytingu.