Ormahreinsun hunda og katta 7. febrúar milli 16:00 og 18:00

Samkvæmt samþykkt um hundahald á Skagaströnd skulu allir hundar og kettir í sveitarfélaginu ormahreinsaðir ár hvert.

Þriðjudaginn 7. febrúar milli 16:00-18:00 mun dýralæknir frá Dýraspítalanum í Glæsibæ sinna ormahreinsun og verður með aðstöðu í áhaldahúsi sveitarfélagsins.

Ormahreinsun er innifalin í árlegu hunda- og kattaleyfisgjaldi. Ekki er nauðsynlegt að panta tíma.

 

Minnum á að samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda og ketti skulu allir hundar og kettir í sveitarfélaginu vera skráðir. Skráningarblað má finna á heimasíðu sveitarfélagsins undir eyðublöð. Hægt er að skila inn eyðublaði á skrifstofu sveitarfélagsins eða á netfangið skagastrond@skagastrond.is

Skráð dýr stendur til boða ormahreinsun á vorin endurgjaldslaust. Skráðir hundar eru svo með ábyrgðartryggingu hjá Sjóvá í gegnum sveitarfélagið.

Ábyrgðartrygging hunda er ætl­uð til að mæta skaða­bóta­kröf­um vegna tjóns sem hundur veldur á þriðja aðila. Þetta geta bæði ver­ið tjón á eign­um og lík­ams­tjón og er oft um háar fjár­hæð­ir að tefla.