Óskað er eftir verktaka til að sinna snjómokstri

Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir verktaka til að sinna snjómokstri innanbæjar. Verkið felst í að að sinna snjómokstri, þ.e. hreinsun á snjó og krapa á akstursleiðum innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins og hafa tiltækan þann búnað og mannskap sem þarf til þeirra verka.

Hægt er að sækja gögn vegna verðkönnunar á skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 3. október en skila þarf inn tilboðum vegna verðkönnunar fyrir 16:00 7. október 2022 á skrifstofu sveitarfélagsins eða á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.

 

Áskilinn er réttur til að semja við einn eða fleiri aðila, taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

 

Sveitarstjóri