Poppmessa í Hólaneskirkju

 

Fimmtudagskvöldið, 30. október nk. kl. 20:30 verður haldinn poppmessa í Hólaneskirkju. 

 

Messan verður létt og skemmtileg með fjölbreyttri dagskrá þar sem leikin verður lifandi tónlist m.a. á gíta og bassa.

 

Kirkjukórinn syngur og einsöngvararnir Halldór G. Ólafsson og Sigríður Stefánsdóttir syngja einsöng sem og sóknarpresturinn sjálfur.

 

Á dagskrá eru lög eftir Eric Clapton, Simon og Garfunkel og Geirmund Valtýsson svo einhverjir séu nefndir. Tónlistarstjórn er í höndum Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista.

 

Komum í poppmessu og eigum saman góða og létta stund.