Raðhús til sölu

 

Fasteignasalan Domus á Blönduósi hefur fengið til sölumeðferðar raðhús að Suðurvegi 4 á Skagaströnd. Húsið er staðsett við kyrrláta götu í um 350 metra göngufjarlægð frá verlsun og grunnskóla.

Gengið er inn í forstofu með fatahengi af framlóð. Til hægri er þvottahús/geymsla, beint áfram er gengið inn á gang sem opnast inn í sameiginlega stofu og borðstofu til hægri. Til vinstri eru svefnherbergi og snyrting. Úr stofunni er gengið inn í eldhús, jafnframt er útgangur um svalahurð á baklóð vestan við húsið. Þrjú svefnherbergi með skápum eru í eigninni, eitt þeirra með svalahurð út á baklóð. Skápar eru í svefnherbergjum. Flísalagt baðherbergi með baðkari Snyrtilegur dúkur er á öðrum gólfum, nýtt ofnakerfi og hitalagnir.

Upplýsingar veita Stefán Haraldsson s 440 6170 eða 664 6030 stefan@domus.is  eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 6170 stefano@domus.is

http://domus.is/leitarnidurstada/eign/fasteign/364175/