Samtals 33,7 milljón kr. fjárlögum til Skagastrandar

 

Samkvæmt fjárlögunum ársins 2009 munu styrktir og framlög til Húnavatnssýslna nema rúmlega 70,0 milljónum á næsta ári. Hæst ber þar styrkur til Sjávarlíftækniseturs á Skagaströnd en því er úthlutað 22,7 milljónum og framlag til tveggja sérfræðinga í Húnavatnssýslu sem er úthlutað 17,0 milljónum.

 

Af öðrum verkefnum þá má nefna eftirfarandi: Grettistak ses, 1,5 milljón, Selasetur 5,0 milljónir, Hálendismiðstöð á Hveravöllum 4,0 milljónir, Grettisverkefni í Húnaþingi vestra 4,0 milljónir, Nes, listamiðstöð Skagaströnd 1,0 milljón, Spákonuhof á Skagaströnd 4,0 milljónir, Á slóðum Vatnsdælusögu 2,0 milljónir, Biopol á Skagaströnd 6,0 milljónir og Hveravallafélagið, mannahald á Hveravöllum á veturna

1,5 milljón. Einnig mun verða veitt fjármagn í sjóvarnir á Norðurlandi upp á 19,4 milljónir.

 

Af ofangreindu má ráða að veittir eru styrkir og framlög til Skagastrandar að fjárhæð kr. 33,7 milljónir króna.