Séra Bryndís Valbjarnardóttir skipuð sóknarprestur á Skagaströnd

 Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Bryndísi Valbjarnardóttur í embætti sóknarprests í Skagastrandarprestakalli í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Bryndís hefur starfað sem afleysingaprestur á Skagaströnd frá því 1. september 2013. Hún tekur formlega við embætti 1. ágúst nk. Hún útskrifaðist úr guðfræðideild 2001 og vígðist til prest 2010.

Í Skagastrandarprestakalli eru sex sóknir. Þær eru: Hofssókn, Höfðasókn, Höskuldsstaðasókn, Holtastaðasókn, Bólstaðarhliðarsókn og Bergsstaðasókn.