Síðasta opnunarhelgi hjá Djásn og dúllerí

Nú fer að líða að lokum sumar-opnunar handverks- og hönnunarmarkaðar Djásna og dúllerís. 

Síðasta opnunarhelgin er 28. og 29. ágúst og er því um að gera að nota nú tækifærið og verða sér úti um hlýja vetlinga, sokka, húfur, eyrnabönd og lopapeysur fyrir veturinn.

Gera má ráð fyrir að a.m.k. 1500 manns hafi lagt leið sína í kjallarann á gamla kaupfélagshúsinu þennan rúmlega mánuð sem það hefur verið opið.

Frekari frétta af Djásnum og dúlleríi má vænta innan skamms. 

Signý, Björk og Birna