Síldarbræðsla á Skagaströnd

Ljósmyndari: Helga Berndsen
Ljósmyndari: Helga Berndsen

Síldarbræðsla í fullum gangi í verksmiðjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1950. Gufuketill verksmiðjunnar var kyntur með svartolíu en ketillinn var í rými lengst til hægri í húsinu til vinstri og svartur reykurinn fór út í andrúmsloftið gegnum stóra skorsteininn. Úr ketilhúsinu var gufan leidd í næsta rými hússins og látin knýja túrbínu til rafmagnsframleiðslu fyrir verksmiðjuna. Síðan var gufan leidd áfram neðanjarðar yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Úr síldinni var svo unnið mjöl og lýsi. Mjölinu var blásið yfir í stóru skemmuna gegnum rörið sem sést á myndinni milli veksmiðjuhússins og skemmunar. Lýsinu var aftur á móti dælt í tank sem stóð upp við Höfðann rétt norður af frystihúsi Hólaness hf. Næst okkur á myndinni eru leifar gömlu bryggjunnar sem var rétt austan við Hólsnefið. Bryggjuna byggðu sjómenn á Skagaströnd 1922 með styrk frá Verslunarfélagi Vindhælinga.