Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár

Út er komin bók um sögu sjómannadagsins á Skagaströnd í 70 ár eða allt frá því að hann var fyrst haldinn hátíðlegur um 1940.  

Höfund bókarinnar og útgefandi er Lárus Ægir Guðmundsson. Bókin er 70 bls. að stærð og prýdd 180 gömlum og nýjum ljósmyndum frá margvíslegum atburðum sem tengjast þessum mikla hátíðisdegi Skagstrendinga og raunar Íslendinga allra.

Í bókinni er saga hátíðahaldanna rakin allt frá árinu 1939 og fram til dagsins í dag. Þar er að finna frásagnir af hinum ýmsu þáttum í sjómannadagshátíðahöldunum þennan tíma og deginum lýst í máli og myndum. 

Í bókinni skrá með myndum yfir alla þá sem fengið hafa heiðurspening sjómannadagsins allt frá árinu 1965 þegar fyrstu sjómennirnir voru heiðraðir. 

Í lok bókarinnar sem heitir Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár eru minningar 3ja Skagstrendinga um það hvernig þeir muna þennan dag frá æsku sinni og uppvexti. 

Útgáfa bókarinnar er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.


Bókin er til sölu í versluninni Samkaup á Skagaströnd og í Reykjavík má nálgast hana hjá Soffíu í síma 660 0062 og Stefáni í síma 820 6888