Skagstrendingur í öðru sæti í stærðfræðikeppni

Föstudaginn 29. apríl fór fram stærðfræðikeppni FNV og 9. bekkjar grunnskóla á Norðurlandi vestra, en keppnin hefur nú verið haldin árlega í fjórtán ár.

Í fyrsta sæti var Sævar Óli Valdimarsson, Varmahlíðarskóla, í öðru sæti var Guðrún Anna Halldórsdóttir, Höfðaskóla og í þriðja sæti var Haukur Marian Suska, Húnvallaskóla.  Undankeppni stærðfræðikeppninnar fór fram í mars og tóku 131 nemandi frá Norðurlandi vestra og Fjallabyggð þátt í henni. Að þessu sinni komust 15 nemendur í úrslitakeppnina.

Af þeim voru 5 frá Áskóla, 2 frá Varmahlíðarskóla, 5 frá Höfðaskóla, 2 frá Húnavallaskóla og 1 frá Grunnskóla Húnaþings vestra.

Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni FNV, grunnskóla, stofnana og fyrirtækja á Norðurlandi vestra auk þess sem fyrirtæki utan kjördæmisins koma að verkefninu. Kennarar í stærðfræði við FNV báru hitann og þungann af samningu og yfirferð keppnisgagna, en grunnskólarnir sáu um fyrirlögn dæmanna í undankeppninni.

Fréttin er af heimasíðu Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.