Skagstrendingur vikunnar - Ágúst Óðinn Ómarsson

Gústi Ómars á góðum degi!
Gústi Ómars á góðum degi!

Í Skagstrendingur vikunnar kynnum við til sögunnar íbúa Skagastrandar í stuttum og léttum viðtölum.

Markmiðið er að byrja vikuna á brosi, jákvæðni og betri tengingu við fólkið í samfélaginu okkar.

Skagstrendingur vikunnar er Ágúst Óðinn Ómarsson.

1. Hver ert þú og hver er þín saga í stuttu máli – hvernig varð Skagaströnd hluti af lífi þínu?

Ég heiti Ágúst Óðinn Ómarsson. Ég starfa sem skipstjóri á togara frá Fiskseafood. Ég á 4 börn og 5 barnabörn, 4 systkini og foreldra.

Ég bý með Sigríði Ólínu Ásgeirsdóttir frá Litla Felli. Ég flyt til Skagastrandar 1984 með fjölskyldunni þá er ég 15 ára. Mér var mjög vel tekið af jafnöldrum og leið strax vel á Skagaströnd. Gleymi aldrei fystu kynnum af strákunum sem buðu mig velkominn í hópinn á fyrsta degi. Félagslífið gekk ljómandi vel enda náði ég í Siggu.Við fluttum til Vestmannaeyja 1990 þar menntaði ég mig í skipstjórn og fluttum til baka 1992 því ég fékk 2. stýrimannspláss á Arnari HU 1.

2. Hvað finnst þér gera Skagaströnd að góðum og heillandi stað til að búa á?
Er búin að ala upp 4 börn hérna og staðurinn er frábær til að alast upp á. Mátulega fámennt til að hverfa ekki inní hópinn. Nóg hægt að hafa fyrir stafni - til dæmis allskonar veiði við hendina. Síðan er náttúrufegurðin mögnuð. Spákonufellið og Höfðinn.
 
3. Áttu þér uppáhaldsstað á Skagaströnd og afhverju?
Það er alltaf gaman að fara á bryggjuna. Hitta kallana þar og taka smá spjall. Fara í sund og fá kaffi í heita pottinum.
 
4. Hvernig lítur fullkominn dagur á Skagaströnd út fyrir þér?
Það er að skreppa í göngutúr með afahundinn Mola. Kannski rambar maður á Árna Sig. Kíkja í kaffi til mömmu og pabba.
Helst að fá fjölskylduna í mat. Þá gjarnan grilla ég eitthvað gott.

 

5. Hvað í daglegu lífi hér veitir þér gleði eða ró?

Það er að heyra frá fjölskyldunni að allir séu heilir og hressir.

6. Hvaða eiginleika eða áhugamál skilgreina þig best – innan eða utan vinnu?
Ég er skipstjóri og hef mikinn áhuga á að standa mig vel. Bæði fyrir útgerð og áhöfn. Í frítíma hef ég mörg áhugamál td. björgunarsveitarstörf, er með bullandi bíladellu, jeppadellu, veiðidellu og mótorhjóladellu. Það má segja að Skagaströnd henti ljómandi vel fyrir svona áhugamál. Horfi nánast eingöngu á landsleiki, bæði fótbolta og handbolta, þó er gaman að fylgjast með Tindastól í körfunni. Held samt með Liverpool í ensku.

 

7. Er eitthvað skemmtilegt, óvænt eða sérstakt við þig sem flestir vita ekki?

Ég er brandarakall og er mjög fyndinn, það skilja bara ekki allir húmorinn :).

8. Hvaða manneskja, atburður eða upplifun á Skagaströnd hefur haft mótandi áhrif á þig?
Það má segja að þegar ég fer fyrst um borð í togarann Arnar HU 1 sem sagt Japans skipið árið1989. Þá sá ég ævistarfið myndast. Þarna voru öndvegismenn sem ég leit upp til. Seinna fékk ég að vinna með og læra af fiskimönnunum Jonna Ebba og Árna Sig. Á góðar minningar af þeim tíma. Skagstrendingur hf. ól upp ógrynni af góðum togarasjómönnum.
 
9. Hvað fær þig helst til að brosa þegar þú hugsar um bæinn okkar?
Það eru gömlu hefðirnar, sjómannadagurinn alltaf skemmtilegur og skötuveislan. Ég réri í kappróðrinum á sjómannadaginn í rúm 20 skipti í röð, alltaf gaman. Nú hef ég fengið að stýra hörkukappróðrasveit úr leikskólanum. Amma heitin, Sigríður Magnúsdóttir, sem lést í desember síðastliðnum 98 ára gömul. Hún sagði "ég elska Skagaströnd sólin er allan daginn". Þetta er rétt það skyggir ekkert á sólarganginn.
 
10. Hvaða skilaboð eða ósk viltu senda til íbúa Skagastrandar – núna eða til framtíðar?
Ég óska þess að fólk hafi það gott. Svo hvet ég fólk að taka þátt í þeim viðburðum sem í boði eru.
Maður er manns gaman.
 

Við hjá sveitarfélaginu þökkum Skagstrendingi vikunnar kærlega fyrir að deila með okkur sinni sögu. Viðtölin minna okkur á styrkinn í samfélaginu okkar og hversu dýrmætt er að kynnast fólkinu sem gerir Skagaströnd svo einstaka!

Njótið vikunnar!