Skákmót Skagastrandar 2024

H-59 ehf. á Skagaströnd hefur í hyggju að standa árlega fyrir skákmóti sem kallast Skákmót Skagastrandar.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin og sá aðili sem verður efstur á hverju ári fær titilinn Skákmeistari Skagastrandar.

Um langt árabil fyrir nokkuð löngu síðan voru svona mót haldin árlega og nú viljum við reyna að taka upp þráðinn á nýjan leik.

Öll 15 ára og eldri sem hafa áhuga á að koma og tefla sér til ánægju á Skákmóti Skagastrandar 2024 hafi samband við Lárus Ægir í síma 864 7444 fyrir 1. mars 2024.

Tímasetning móts fer eftir áhuga og verður auglýst síðar.

Mótið er opið öllum.