Skáldin á Skagaströnd!

 

 

Jón Kalman Stefánsson, Eiríkur Guðmundsson og
Óskar Árni Óskarsson

 

Rithöfundarnir þrír lesa upp úr verkum sínum og spjalla við gesti í

Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra

í gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd

 

Fimmtudaginn 31. október

Dagskráin hefst klukkan 20:00

 

Allir eru hjartanlega velkomnir að hlýða á og þiggja veitingar

 

 

Jón Kalman Stefánsson er  með þekktustu  rithöfundum  samtímans, ekki síst fyrir bækurnar  Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og  Hjarta mannsins.  Ásamt skáldsögum hefur hann gefið út ljóðabækur, smásögur. Þrjár af bókum hans hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverð­launa Norður­landa­ráðs og  hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2005.

 

Í ár kemur út eftir Jón skáldsagan Fiskarnir hafa enga fætur

 

Eiríkur Guðmundsson er landsmönnum bæði kunnur sem dagskrár­gerðar­maður og umsjónarmaður útvarpsþáttarins Víðsjár og fyrir skáld­sögur sínar 39 þrep á leið til glötunar, Undir himninum og Sýrópsmánann.

 

Nýjasta skáldsaga Eiríks heitir 1983 og kemur út á haustdögum.

 

Óskar Árni Óskarsson er með virtustu ljóðskáldum og þýðendum okkar, og hefur bæði verið tilnefndur til Þýðingarverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Meðal verka hans má nefna Ljós til að mála nóttina, Vegurinn til Hólmavíkur og Kuðungasafnið; síðastnefnda bókin er safn smáprósa, en Óskar Árni hefur náð undraverðum tökum á því formi.

 

Það sem við tölum um þegar við tölum um ást er heiti á þýðingu hans á smásögum bandaríska höfundsins Raymond Carver.

 

Háskóli Íslands