Skráning hunda og katta

Sveitarfélagið Skagaströnd hvetur þau sem ekki hafa skráð sína hunda eða ketti að drífa í því, líkt og samþykktir sveitarfélagsins gera ráð fyrir. Skráningarblað eru á skrifstofu og á heimasíðu sveitarfélagsins. Hægt er að fylla út skráningarblað frá heimasíðu sveitarfélagsins og senda á skagastrond@skagastrond.is

Skráningarblað á heimasíðu

Skráð dýr stendur til boða ormahreinsun á vorin endurgjaldslaust. Skráðir hundar eru svo með ábyrgðartryggingu hjá Sjóvá í gegnum sveitarfélagið. 

Ábyrgðartrygging hunda er ætl­uð til að mæta skaða­bóta­kröf­um vegna tjóns sem hundur veldur á þriðja aðila. Þetta geta bæði ver­ið tjón á eign­um og lík­ams­tjón og er oft um háar fjár­hæð­ir að tefla.