Nýsköpunarstyrkir - Skrifstofuaðstaða hjá Atwork á Skagaströnd

Nýsköpun á Skagaströnd – Atwork
Sveitarfélagið Skagaströnd leggur áherslu á að styðja frumkvöðlastarf og nýsköpun í sveitarfélaginu.
Sveitarfélagið auglýsir því eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar. Styrkirnir eru ætlaðir einstaklingum eða verkefnum sem vinna að nýjum hugmyndum, þróun eða frumkvöðlastarfi á Skagaströnd. Veittir verða styrkir til sex aðila.
 
Styrkurinn felur í sér aðgang að aðstöðu hjá Atwork í 3-12 mánuði eftir þörfum:
  • Vinnuaðstaða
  • Fundarherbergi
  • Sameiginlega þjónustu og aðbúnað sem Atwork býður upp á
Markmið styrkjanna er að efla nýsköpun, skapa verðmæti og styrkja atvinnulíf á Skagaströnd.
 

Fylgigögn með umsókn

Með umsókn skulu fylgja:

  • stutt lýsing á verkefni (markmið, hugmynd og ávinningur)
  • áætlun um framkvæmd og tímaramma
  • upplýsingar um umsækjanda/teymi (bakgrunnur og reynsla)
  • önnur gögn sem umsækjandi telur styðja við umsóknina

Mat á umsóknum

Sveitarstjórn Skagastrandar fer yfir umsóknir og velur úr þeim verkefni sem hljóta styrk.

Við mat á umsóknum verður meðal annars horft til:

  • nýsköpunargildis og frumleika hugmyndar
  • framkvæmanleika og skýrleika áætlunar
  • áhrifa á atvinnulíf og samfélag á Skagaströnd
  • getu umsækjanda til að þróa og hrinda verkefninu í framkvæmd
Umsóknir
Umsóknir um styrki skulu berast á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is fyrir 30. apríl nk. 
 
Öllum umsóknum verður svarað.