Starfsfólk vantar hjá Vinnumálastofnun á Skagaströnd

Vinnumálastofnun á Skagaströnd leitar eftir starfsfólki. Í boði eru tímabundin störf á greiðslustofu og þjónustuskrifstofu til áramóta. 

Leitað er að áhugasömu fólki með góða leikni í mannlegum samskiptum, lipurð í tölvunotkun og áhuga á að skila góðu starfi.  Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum SFR.  Framhalds- eða háskólamenntun er kostur sem og reynsla af skrifstofustörfum.

Helstu verkefni eru afgreiðsla umsókna, almenn skrifstofustörf, símsvörun og upplýsingagjöf. Hlutverk Greiðslustofu Vinnumálstofnunar er að sjá um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið en þjónustuskrifstofan þjónustar hins vegar atvinnuleitendur á Norðurlandi vestra.  Á skrifstofunni á Skagaströnd starfar nú rúmlega 20 manns.  

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og kynna sér þau störf sem eru í boði ásamt því að skoða upplýsingar um starfsemi Vinnumálastofnunar á www.vinnumalastofnun.is.  

Athygli er vakin á því að þar sem um tímabundin störf er að ræða þá verður ekki fylgt formlegu umsóknarferli heldur valið úr þeim umsækjendum sem setja sig í samband og skila inn umsókn með ferilskrá.  

Líney Árnadóttir forstöðukona veitir upplýsingar í síma 455 4200 og tekur við umsóknum á netfangið liney.arnadottir@vmst.is