Starfsmaður í íþróttahús/sundlaug

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir starf í íþróttahúsi/sundlaug laust til umsóknar.

 

Starfið er fólgið í vaktavinnu í íþróttahúsi yfir vetrarmánuðina og sundlaugarvörslu á sumrin.

Leitað er eftir reglusömum starfsmanni sem er lipur í samskiptum, fær um sjálfstæð vinnubrögð og hefur hæfni til að starfa með börnum og unglingum.

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins www.skagastrond.is

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2012.

Nánari upplýsingar veitir Árni Geir í síma: 861 4267.

 

Sveitarstjóri