Stefán Velemir er íþróttamaður ársins í A-Hún

Ugmennassamband A-Hún hélt 94. ársþing sitt um helgina, en nú eru 99 ár fram stofnun sambandsins. Um 30 fulltrúar voru mættir ásamt gestum frá ÍSÍ og UMFÍ. 

Auk venjulegra aðalfundarstarfa var Íþróttamaður ársins valinn en það var að þessu sinni Stefán Velemir úr Fram á Skagaströnd en Stefán er mjög efnilegur frjálsíþróttamaður.

Auk þess var Þórhalla Guðbjartsdóttir, formaður Umf. Hvatar, sæmd silfurmerki ÍSÍ. Nánari upplýsingar um þingið verður hægt að nálgast á heimasíðu USAH innan tíðar.

Fréttin er fengin af vefsíðunni huni.is.