Stóri plokkdagurinn 25. apríl

Stóri plokk­dagurinn verður haldinn þann 25. apríl næst­komandi.


Að plokka gefur fólki tækifæri á að sameina útiveru og hreyfingu sem og að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki. Það er tilvalið í samkomubanni þar sem auðvelt er að virða tveggja metra regluna.


Sveitarfélagið hvetur alla til þess að taka þátt og mun staðsetja einn gám við Spákonuhof og annan við Skagaveg norðan við skátabraggann (á Kröfluplani) þar sem hægt verður að losa sig við það rusl sem safnast saman!


Sveitarstjóri