Styrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi

 

Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2009-2010. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

 

Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 26. febrúar 2010.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins. Reglur um styrkina má finna hér og umsóknareyðublað hér.

 

 

 

Skagaströnd, 13. janúar 2010.

 

Fyrir hönd sveitarstjórnar

 

Sveitarstjóri