Styrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi

 Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2010-2011. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

 

Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 26. febrúar 2011.

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni má einnig finna reglur um námsstyrki. Umsóknareyðublað má nálgast  hér.  

Skagaströnd, 1. febrúar 2011.

 

Fyrir hönd sveitarstjórnar

 

Sveitarstjóri