Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum kostur. 

Jafnframt eru auglýst laus til umsókna sumarstörf námsmanna og atvinnuleitenda í samstarfi við Vinnumálastofnun. Sveitarfélagið fékk úthlutað 5 störfum fyrir námsmenn í tvo mánuði sumarið 2011. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli.  

Rafrænt umsóknarform er að finna  hér en umsóknareyðblöð má einnig fá á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er til 12. maí n.k.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700.